VAXMEÐFERÐIR

JANÚARTILBOÐ
Brasilískt súkkulaðivax eða vax að hnjám
Notað er súkkulaðivax með góðum olíum sem gera meðferðina mun sársaukaminni
Brasilískt súkkulaðivax eða vax að hnjám
Val um:
Brasilískt súkkulaðivax. Fullt verð 6.500 kr
Vax að hnjám. Fullt verð 4.900 kr
Vax er notað til að fjarlæga öll óæskileg hár, ekki er mælt með að eftir vaxmeðhöndlun að viðkomandi fari í sund, ljós eða leikfimi.
Eftir vaxmeðhöndlun er húðin opin og viðkvæm og hætta er á sýkingum ef ekki er farið eftir fyrirmælum.
Líkamsvæði sem eru mikið vöxuð á stofum eru: vax að hnjám, að nára, alla leið (leggir, læri og nári), aftan á lærum, nári, brasilískt vax, undir hendur, handleggir, vör, andlit, bringa og bak. Karlmenn koma nú í auknum mæli í vax á baki og bringu.
Súkkulaðivaxið er aðalega notað í basilískt vax ekki eins sársaukamikið og venjulegt vax vegna olíanna sem eru í vaxinu.
Súkkulaðivax festist ekki við húðina vegna þess það er svo ríkt af góðum olíum t.d laxerolíu þess vegna er ekkert álag á húðina, vaxið umlykur sig um hárin og tekur þau frá rót.
Eftir súkkulaðivax er húðin ekki eins rauð og ert eins og eftir venjulegt vax.
Súkkulaði vax er líka gott að nota í andlit, nára, undir hendur, bak og á augabrúnir, en taka þarf fram þegar pantað er að viðkomandi vilji súkkulaðivax.
Gold Strip Vax er svo notað á stærri svæði t.d fótleggi,handleggi,bak,bringa þetta vax nær hárunum einstaklega vel.
Rut Ragnarsdóttir snyrtifræðingur býr við mikla reynslu á vaxi ásamt öðrum snyrtimeðferðum Hún er þekkt fyrir fagmannleg vinnubrögð en jafnframt hlýja og persónulega þjónustu. Komdu í hlýtt og vinalegt umhverfi hjá Heilsa og Útli og leyfðu fagmönnum að sjá um þig.
Tímapantanir og nánari upplýsingar eru í síma 562-6969