Heilsa og útlit
Vellíðan skiptir öllu máli



Heilsa og útlit er stofa sem sérhæfir sig í að hlúa að líkama og sál. Sandra Lárusdóttir er menntaður einkaþjálfari, en hún stofnaði fyrirtækið sumarið 2104 og hefur það á skömmum tíma náð að festa sig í sessi með sérhæfðum meðferðum sem bæta vellíðan viðskiptavina, útlit og heilsu.
„Okkar markmið er að þér líði sem best með sjálfan þig og að þú njótir þín í rólegu og afslappandi umhverfi hjá okkur,“ segir Sandra sem hefur sérhæft sig í hinum ýmsu líkamsmeðferðum síðustu þrjú árin og kynnt sér náið nýjustu strauma og stefnur í slíkum meðferðum. Sandra er umboðsaðili fyrir heilsuvöruframleiðandann Weyergans, en hún notar mikið af tækjum og tólum þaðan í sogæðameðferðir sínar hjá Heilsu og útliti og mætti þar nefna sérstaklega súrefnishjálminn, sogæðastígvélin og „Detox“-pokann. „Við sérhæfum okkur í hreinsun sogæðakerfisins sem er hreinsunarkerfi líkamans. Þetta er gott fyrir hvers kyns bólgu, virkjar kerfið í okkur og fær okkur til að líða betur,“ útskýrir Sandra. „Það er mjög ánægjulegt að fá viðbrögðin frá viðskiptavinunum. Það finnur og sér muninn um leið og það upplifir mikla vellíðan. Hingað kemur t.d. ein kona sem keyrir alla leið frá Stykkishólmi einu sinni í viku til að fá meðferð,“ segir Sandra. „Meðferðirnar eru andlegar og líkamlegar. Vellíðan skiptir öllu máli. Og það er bónus ef útlitið lagast líka,“ segir Sandra að lokum.