AROMA DERM

Aroma Derm “organic” líkamsmeðferð
-
Fyrir dömur og herra
-
Sjáanlegur munur eftir 1 skipti
-
Stinnir og þéttir húðina
-
Húðin verður silkimjúk
-
Minnkar appelsínuhúð og ummál líkamans
-
Losar óhreinindi í húð
Aroma Derm líkamsmeðferðin eru mjög vinsæl hjá bæði dömum og herrum sem vilja bæta áferð húðarinnar. Áhrif Aroma Derma Gel er að stinna og þétta húðina en um leið gera hana silkimjúka. Virku efnin í vafningunum örva losun óhreininda í húðinni og minnka hina hvimleiðu “appelsínuhúð” sem og ummál líkamans. Hægt er að velja um 4 styrkleika á gelinu, soft, medium, strong og extra strong. Meðferðin hentar einstaklega vel eftir mikið þyngdartap þar sem húðin hefur ekki fylgt eftir á sama hraða.
Meðferðin fer þannig fram að gel, sem valið er fyrir hvern og einn, er borið á líkamann frá ökklum upp undir hendur og á upphandleggi. Líkaminn er vafinn inn í plast og síðan er sérstakt hitateppi (Thermal Blanket) sem þú leggst í. Á meðan er hlustað á slakandi tónlist í 40 mínútur þegar gelið er að virka. Að meðferð lokinni er borið sefandi Aloe Vera krem til að róa húðina og gefa henni þann raka sem hún þarf eftir meðferðina.
Sjáanlegur árangur er eftir eitt skipti, en til að sjá verulega góðan árangur er æskilegt að taka fulla meðferð í Aroma Derm Gel meðferðinni. Þá er mælt með tveimur meðferðum á viku í ýmist þrjár eða sex vikur. Til að viðhalda árangri er æskilegt að koma tvisvar sinnum í mánuði.
-
Pantanir eru hjá Heilsu og útlit í síma: 562 6969
-
Meðferðin tekur um 50 mínútur.