FITUFRYSTING

Líkamsmótandi fitufrysting ( Cryolipolysis )
Frysting fitu er frábrugðin öðrum fitumeðferðum án skurðaðgerða þar sem notuð er kæling til þess aðfrysta fituna og þar með eyða fitufrumum endanlega. Vísindalegar rannsóknir hafa sýnt fram á aðmeð frystingu fitu getur þú eytt á bilinu 20%40% af fitufrumum í því svæði sem er til meðferðar íhvert sinn. Fitufrumur deyja þegar þær eru frystar að ákveðnu hitastigi. Meðferðin er notuð semvalmöguleiki í staðin fyrir fitusog og er nútímaleg aðferð við mótun líkama, þar sem einstaklingurgetur farið í fitufrumu frystingu , án þess að missa dag úr vinnu.
Við getum bókstaflega fryst af þér magann, mjaðmafitu, bakfitu eða bingóvængina.
Á næstu vikum eftir meðferðina sér lifrin og líkaminn um að skila út dauðu fitufrumunum. Þú ferð aðsjá árangur tveim vikum eftir meðferð en allt að 4 mánuðir geta liðið þar til endanlegur árangur affrystingu fitufrumanna er kominn í ljós.
Algengar spurningar
Hvað er þetta?
Cryolipolysis er viðurkennd aðgerð. Notuð er tækni sem frystir ákveðin meðferðarsvæði sem leiðir tilminnkunar fitufruma á því svæði. Árangur er að meðaltali 33% í hverri meðferð. Tæknin var þróuð af húðsjúkdómalæknum við Harvard háskóla. Rannsóknir þeirra leiddu í ljós að fitufrumur bregðast betur við kulda sem beitt er á svæðin. Fitufrumur kristallast við mismunandi hitastig en aðrar frumur.Meðferðin er svæðisbundin og hefur ekki áhrif á aðrar frumur, skinn, vöðva eða taugar á viðkomandisvæði
Virkar þetta virkilega?
JÁ – Það eru margar vísindalegar rannsóknir sem styðja þessa tækni sem og umsagnir frægafólksins og fyrir og eftir myndir af þeim sem hafa látið frysta fitu. Aðferðin er víða þekkt sem ein bestaóskurðtæka aðferðin við að losna við fitu þar sem fitufrumum fækkar um 20%40% í hverri meðferð.Skoðaðu vitnisburð fólks sem hefur farið í þessa meðferð og blaða umfjallanir þessu til stuðnings.
HVERNIG VIRKAR ÞETTA?
Sérstakur soghaus með kæliplötum í er settur á það svæði sem valið hefur verið til meðferðar.Svæðið er því næst kælt í 5° en fitufrumur eru sérstaklega viðkvæmar fyrir kulda. Þegar fitufrumurnar kristallast og eru þar af leiðandi ekki virkar lengur, brotna þær niður. Æðarkerfi, taugarog vöðvar á meðferðarsvæðinu eru ekki eins viðkvæm fyrir kulda og því hefur meðferðin ekki áhrifnema á fitufrumurnar. Fitufrumurnar eyðast því en aðrir hlutar líkamans verða ekki fyrir áhrifum.
HVAÐ GERIST FYRIR FITUFRUMURNAR ÞEGAR ÞÆR HAFA VERIÐ MEÐHÖNDLAÐAR?
Fitufrumur deyja og leysast upp í gegnum sogæðakerfið. Fitufrumurnar eyðast og losna úrlíkamanum á sama hátt og annar úrgangur. Svæðið sem hefur verið meðhöndlað minnkar á komandi vikum á meðan úthreynsunin er í gangi.
HVAÐ TEKUR MEÐFERÐIN LANGAN TÍMA?
Með þessari nýju tækni hefur tíminn styst verulega og tekur ekki nema 60 mínútur fyrir hvert svæði.
HVAÐ ÞARF ÉG MÖRG SKIPTI?
Eitt skipti er yfirleitt nóg fyrir hvert svæði. Aðferðin að frysta fitu gerir það mögulegt að ekki þarfmargar meðferðir. Það fer hins verar eftir þykkt fitunnar og þínum markmiðum og þínum eigin markmiðum hvort meðhöndla þarf svæðið aftur en það er ekki nauðsynlegt. Ef þú hins vegar vilt takasama svæði aftur þurfa að líða að minnsta kosti 60 dagar á milli meðferða. Það er eingöngu til þessað virkni fyrri meðferðarinnar sé að fullu kominn í ljós.
HVER ER ÁRANGURINN?
Vísindalegar rannsóknir á Cryolipolysis hafa sýnt ffram á milli 20%40% árangur en að meðaltali um33%. Árangurinn ræðst af þykkt fituveggsins á hverju svæði og lífsstíl þínum eftir meðferð. Þeir semfara eftir ráðleggingum um eftirmeðferð ná bestum árnagri.
HVENÆR FER ÉG AÐ SJÁ ÁRANGUR?
Það er einstaklingsbundið hvenær árangur fer að koma í ljós og getur það oltið á þykkt fituveggsinsog lífsstíl þínum. Breytingin verður mest á um 12 vikna tímabili sem er sá tími sem tekur að sjáhámarksárangur. Flestir byrja þó að sjá breytingu eftir um 2 vikur en breytingin verður ekki að fulluljós fyrr en eftir 12 vikur. Í rannsóknunum voru 9 af hverjum 10 búnir að sjá augljósan mun 12 vikumeftir að meðferð lauk.
FINN ÉG FYRIR EINHVERJU Í MEÐFERÐINNI?
Meðferðin er fyrir flesta algjörlega sársauka laus og þæginleg vegna okkar sérstöku tækni.Soghausinn sem notaður er gefur smá skrítna tilfinningu en ekki sársauka tilfinningu. Það er mjöglíklegt að þú gleymir hausnum á meðan þú ert í meðferð. Margir sofna á meðan meðferð stendur.Það er engin deifing notuð í þessari meðferð.
FYRIR HVERJU FINN ÉG EFTIR MEÐFERÐINA?
Kosturinn við Cryolipolysis er að venjulega eru engar aukaverkanir. Það er enginn frátími sem þarfeftirmeðferð og þú getur mætt beint í vinnu um leið og þú ert búin. Þú átt að vera í stakk búin til aðgera allt sem þú gerir venjulega án óþæginda um leið og meðferð er lokið,. Það er afar sjaldgjæft aðvera rauður eða fá mar við meðferðina.
ERU NOTAÐAR NÁLAR?
Cryotherapy er ekki inngrips meðferð það eru því engar nálar notaðar.
HVER ER MÖGULEGUR KANDÍDAT FYRIR FRYSTINGU FITU?
Cryolipolysis er sérstaklega hannað fyrir staðbundna minnkun fitufruma. Meðferðin hentar því öllum
þeim sem eru með staðbundna fitukeppi til dæmis á maga, mitti, baki, mjöðmum, lærum ogupphandleggjum. Þessi svæði eru þekkt fyrir að vera vandamálasvæði er kemur að því að losna viðfitu með mataræði og æfingum. Þó að flestir geti farið í þessa meðferð er ekki litið á hana sem tæki tilmegrunar. Fyrir okkur er mögulegur kandídat sá sem er nálægt sinni réttu kjörþyngd (BMI) en það erþað fólk sem sér mestan árangurinn. En meðferðin getur einnig virkað sem aukabúst fyrir þá sem eruað hefja nýjan lífsstíl.
ÞARF ÉG AÐ FYLGJA SÉRSTÖKU ÆFINGAR EÐA MATAR PRÓGRAMMI?
Engin bætiefni eða matarprógramm er nausynlegt og þú átt ekki að þurfa að breyta þeim venjum semþú hefur varðandi æfingar. Cryoliposysis kemur ekki í staðin fyrir að hugsa vel um sjálfan sig. Þúgætir verið mótiveruð eftir meðferðina til að hugsa betur um sjálfan þig en þetta er jú fjárfesting íbetra útliti.
Að blanda saman cryolipolysis og heilbrigðum lífsstíl eykur eingöngu á þann árangur sem þú muntsjá. Ef þig vantar ráðleggingar um hvernig þú átt að bæta lífsstíl þinn getum við aðstoðað þig við þaðþar sem við höfum einkaþjálfara á stofunni hjá okkur. Eftirmeðferð innifelur ráðleggingar um að auka vatnsdrykkju, minnka notkun á koffeini og öðrum örvandi efnum til að sjá sem bestan árangur.
HVER ER AÐAL MUNURINN Á ÞESSARI MEÐFERÐ OG ÖÐRUM SAMBÆRILEGUM?
Cryolipolysis meðferð er sjáanleg og náttúruleg leið til að fækka fitufrumum án þess að þurfaskurðaðgerð og þar af leiðandi mun hættu minni. Munurinn á cryolipolysis og öðrum aðferðum semnota t.d. leyser er að við eyðum fitufrumum varanlega og meðferðin þarfnast ekki sérstakrar eftirmeðferðar. Árangurinn er hins vegar lengur að koma í ljós en við fitusog og magaminnkun.Frysting fitu er því áhrifarík aðferð fyrir þá sem vilja forðast skurðaðgerðir,kostnaðinn samfara þeim og losna við langt bataferli sem fylgir aðgerðum.
ÞEGAR FITA Á EINU SVÆÐI ER MEÐHÖNDLUÐ HVAÐ GERIST FYRIR FITU Á ÖÐRUMSVÆÐUM?
Þegar fitufrumum hefur verið eytt er það varanlegt. Þú myndar ekki nýjar fitufrumur á sama svæði ogvar meðhöndlað. Það er ekki hætta á að fitufrumur færist frá einu svæði á annað. Þær fitufrumur sem eftir eru á meðhöndlaða svæðinu geta þó alltaf stækkað ef þú lifir óheilbrigðu líferni.
HVAÐ ER EITT MEÐFERÐARSVÆÐI?
If we treat one area on each arm, that would count as two treatment areas. E.g Lower abdomen = 1area. Both Hips = 2 areas. Both love handles & lower abdomen = 3 areas.
HVAÐA SVÆÐI GETUM VIÐ MEÐHÖNDLAÐ?
Efri og neðri maga, upphandleggi, innri og ytri læri, ástarhöldur, mjaðmir, bak, rasspoka og brjóstkarlmanna. Ekki er hægt að meðhöndla kinnar, ökla eða ristina þar sem þessi svæði eru of fitulítilfyrir meðhöndlun.
HVAÐ KOSTAR MEÐFERÐIN?
Það er mismundandi eftir svæðum og þarf að meta þig áður en kostnaður er gefinn, skoða hverjar þínar óskir eru varðandi frystingu fitu og mótun líkamans.
VERÐIN MIÐAST VIÐ HAUSASTÆRÐINA SEM VIÐ NOTUM.
LÍTILL HAUS 40.000- MIÐ 60.000 OG STÓR 80.000.-
MAGI EITT SVÆÐI 40.000-80.000.-
LÆRI INNANVERÐ BÁÐUM MEGIN 40.000-60.000.-
LÆRI UTANVERÐ BÁÐUM MEGIN 40.000-60.000.-
HENDUR BÁÐUM MEGIN 40.000-60.000.-
HNÉ BÁÐUM MEGIN 40.000.-
BRJÓST KARLA 40.000.-
HLIÐAR BÁÐUM MEGIN 40.000-60.000.-
FRÍTT VIÐTAL TIL ÞESS VERÐMETA SVÆÐIN OG EF FLEIRI SVÆÐI ERU VALIN VEITUM VIÐ AFSLÁTT FRÁ 10-20 % FLESTIR KOMA Í AÐEINS 1 SKIPTI.
Bókið í sima 5626969