SOGÆÐAMEÐFERÐ

Sogæðanudd með þrýstingsstígvélum fyrir fætur og læri sem dregur úr sogæðabólgum, appelsínuhúð, bjúg, fótapirring og minnkar ummál.
Heilsa og Útlit sérhæfir sig í sogæðameðferðum og öðrum snyrtimeðferðum. Persónuleg þjónusta og notarlegt umhverfi.
Þessi meðferð hentar vel gegn:
-
Sogæðabólgum
-
Appelsínuhúð
-
Minnkar ummál
-
Bjúg
-
Fótapirring
-
Æðakerfið
-
Nuddar frá iljum upp í mjöðm.
Upprunalega eða í lok áttunda áratugsins var þróun sogæðameðferða með loftþrýstingi gerð í þeim tilgangi að meðhöndla konur sem glímdu við sogæðabjúg í holhönd eftir brjóstnám. Sú meðferð sem kallast öldurennslis- eða bylgjunudd byggist á því að mynda yfirþrýsting sem nýttur er í meðhöndluninni við sogæðabjúg. Aðferðin virkar þannig að loftþrýstingurinn er leiddur inn í stígvélin sem meðferðaraðilinn klæðist og þá myndast hið svokallaða öldurennslis- eða bylgjunudd. Strax í upphafi níunda áratugsins var farið að nota þessa gerð klofháu þrýstingsstígvéla sem meðferð fyrir fætur og læri. Aðferðin var fyrst kynnt fagfólki fyrir 25 árum og hefur hlotið mikla viðurkenningu í Þýskalandi og öðlast fastan sess framyfir aðrar sogæðameðferðir hjá virtum heilsustofnunum þar í landi.
Snyrtimeðferðir og forvarnir gegn sogæðabjúg.
Samkvæmt upplýsingum frá Heilbrigðisráðuneytinu í Þýskalandi um æðarannsóknir eru 90% allra fullorðinna með veikt æðakerfi. Út frá læknisfræðilegum rannsóknum er óhætt að fullyrða að flestir séu með byrjunareinkenni æðasjúkdóma eins og æðahnúta, æðaslit, bólgur og bjúg. Hér reynist hið svonefnda öldurennslis- eða bylgjunudd tvisvar sinnum áhrifameira en hefðbundið sogæðanudd. Þrýstingsnuddið í stígvélunum er mjög skilvirk leið til þess að slétta húðina og minnka ummálið en veitir samhliða sterka forvörn gegn æðasjúkdómum. Það vinnur ekki einungis á neðri vandamálasvæðunum eins og lærum, rassi og maga heldur er það sömuleiðis mikilvæg og áhrifarík meðferð gegn appelsínuhúð og slöppum vöðvavef á upphandleggjum.
Mælt er með 10-15 skiptum til að ná góðum árangri. Svo 1 sinni í mánuði til að viðhalda sér.Mikilvægt að drekka mikið vatn. Hentar bæði konum og körlum.
Pantanir og nánari upplýsingar í sima 5626969